Til baka í yfirlit

Leiðin að kolefnis­hlutleysi

Rekstur lífeyrissjóðs er ekki orkufrekur rekstur en Birta telur það engu að síður mikilvægt að vera fyrirmynd og setja sér metnaðarfull markmið varðandi mælingu útblásturs, minnkun á kolefnisspori og mótvægisaðgerðir

Kolefnisspor Birtu

Leiðin að árangri

Ein af lykil framtíðaráherslum Birtu er að stýra starfsemi sjóðsins og eignasafni hans í átt að fullu kolefnishlutleysi (e. net-zero) árið 2040 og styðja þannig við loftslagsmarkmið Íslands og Parísarsamninginn.

Birta byggir kolefnisútreikninga sína á alþjóðlega viðurkenndri aðferðafræði Greenhouse Gas Protocol, út frá beinni og óbeinni losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) sem er skilgreind á eftirfarandi hátt:

  • Umfang 1: Bein losun gróðurhúsaloftegunda sem kemur frá starfsemi sjóðsins til dæmis frá faratækjum og vélum fyrirtækisins.
  • Umfang 2: Óbein losun frá framleiðslu aðkeyptrar orku sem notuð er fyrir starfsemi sjóðsins til dæmis í formi rafmagns og hita.
  • Umfang 3: Öll önnur óbein losun sem á sér stað í aðfangakeðju sjóðsins, hjá Birtu er það helst losun eignasafnsins.

Birta styðst við PCAF (e. Partnership for Carbon Accounting Financials) staðalinn til ramma inn áætlaða losun gróðurhúsaloftegunda út frá eignasafni. PCAF-aðferðafræðin er alþjóðlegt samstarfsverkefni fjármálastofnanna sem vinnur að því þróa og innleiða samræmda nálgun til að meta og birta losun gróðurhúsaloftegunda (GHL) og byggir á áðurnefndum Greenhouse Gas Protocol.

Varðandi mælingar á GHL í rekstri er notast við reiknilíkan frá verkfræðistofunni Eflu en sjóðurinn naut ráðgjafar frá Eflu þegar kom að innleiðingu ISO 14001 umhverfisstaðlinum.

Fjármögnuð kolefnislosun Birtu

Markmið og helstu niðurstöður

Til að möguleiki sé á að ná tilsettu markmiði um kolefnishlutleysi árið 2040 þarf fyrst að ná utan um þá losun sem á sér stað í dag og í framhaldi setja fram raunhæf markmið um næstu skref. Unnið er að innleiðingu reglulegs eftirlits með fjármagnaðri losun samkvæmt Greehouse Gas Protocol aðferð. Að auki er mikilvægt að átta sig á þeirri áhættu sem hækkun hitastigs jarðar hefur á eignasafn Birtu og er unnið að gerð loftlagsáhættustefnu fyrir sjóðinn með það að markmiði að draga út þeirri áhættu.

Á árinu 2024 lét Birta framkvæma loftslagsáhættugreiningu sem er mikilvægur þáttur í að skilja þær áskoranir sem fyrirtæki standa frammi fyrir í umhverfismálum og hvernig hægt er að takast á við þær.

Markmið Birtu er að ná utan um fjármagnaða losun fyrir allt eignasafnið, sem samanstendur af um það bil 65% innlendum eignum og 35% erlendum eignum. Fyrir árið 2024 náðist að reikna fyrir yfir 95% af innlenda safninu og 82% af erlendum skráðum hlutabréfum.

Ákveðið var að reikna fjármagnaða losun afturvirkt fyrir árið 2024. Upplýsingar fyrir árið 2025 liggja ekki að fullu fyrir og því er ekki hægt að reikna fjármagnaðan útblástur fyrir síðastliðið ár.

Líkt og undanfarin tvö ár hefur Birta unnið í samstarfi við Veru, sjálfbærnilausn Creditinfo, mat á kolefnislosun innlenda eignasafns samtryggingardeildar fyrir árið 2024. Á grundvelli gagna úr Morningstar var fjármagnaður útblástur erlendra hlutabréfa samtryggingar einnig reiknaður. Aðferðafræði PCAF nær enn sem komið er ekki yfir alla eignaflokka í safni Birtu, en reiknað var fyrir eftirfarandi flokka:

  • Skráð hlutabréf og skuldabréf innlendra hlutafélaga
  • Óskráð hlutabréf og skuldabréf
  • Veðskuldabréf fyrirtækja
  • Fasteignalán / sjóðfélagalán
  • Fjárfestingar í ríkisskuldabréfum
  • Skuldabréf sveitarfélaga
  • Sértryggð skuldabréf
  • Skráð erlend hlutabréf

Lykilatriði aðferðafræðinnar er svokallað losunarhlutfall eða „attribution factor” sem gefur til kynna hversu mikið af losun fyrirtækja telst sem óbein losun fjármálafyrirtækisins. Losunarhlutfall er reiknað á mismunandi máta eftir eignaflokkum, sjá nánar hér.​

Fjármagnaður útblástur

Helstu niðurstöður voru eftirfarandi:

  • Fjármögnuð losun var reiknuð fyrir yfir 95% af innlenda eignasafni sjóðsins og hefur það hlutfall aukist ár frá ári.
  • Laust fé eru utan umfangs greiningarinnar.
  • Fjármögnuð losun vegna innlendra fjárfestinga og útlána Birtu lífeyrissjóðs var 121.296 tCO₂ árið 2024, að frádreginni losun vegna landnotkunar, breyttrar landnotkunar og skógræktar (LULUCF) í íslenska hagkerfinu. Sé það ekki dregið frá er losunin 250.230 tCO₂.
  • Losun vegna húsnæðislána er lítil í samanburði við aðra eignaflokka sjóðsins, um 2 kgCO₂-ígildi á hverja milljón sem lánuð er.
  • Mesta losunin er vegna fjárfestinga í ríkisskuldabréfum, eða um 227.112 tCO₂/ISKm með LULUCF.
  • Losunarkræfni ríkisskuldabréfa er 1,09 tCO₂/ISKm án LULUCF, en 2,51 tCO₂/ISKm með LULUCF.
  • Gagnagæði í greiningunni eru góð; vegið meðaltal gagnagæða innlenda safnsins er 2,6 á skalanum 1–5, þar sem lægra er betra.
  • Heildarlosun í umfangi 1 og 2 í innlendum hlutabréfum er 17.136 tCO₂. Mesta fjármagnaða losun á skráða hlutabréfamarkaðnum kemur frá Eimskip hf., Brim hf. og Icelandair Group hf.
  • Af skuldabréfum óskráðra félaga ber að nefna að Landsvirkjun er ábyrg fyrir stærstum hluta, þó losun sé lág.
  • Af óskráðum hlutabréfum er mesta losun í umfangi 1 og 2 frá HS Orku og Kynnisferðum.
  • Losunarkræfni innlenda eignasafnsins hefur lækkað milli ára eða úr 0,41 fyrir árið 2023 í 0,34 tCO₂/ISKm.
  • Reiknuð var losun fyrir skráð erlend hlutabréf og náðist að greina 82%. Heildarlosun (umfang 1 og 2) var 39.839 tCO₂ og losunarkræfni, umreiknuð í íslenskum krónum, er 0,25 tCO₂/ISKm en það hefur einnig lækkað á milli ára eða úr 0,44.
Fjármagnaður útblástur Birtu lífeyrissjóðs 2024
Eignaflokkur Heildareignir (ISKm) Umfang 1&2 Umfang 3 Losunarkræfni (tC02í/ISKm) Vegin gagnagæði (innan umfangs)
Fasteignalán 67.217 134.4 0 0,002  4,0 
Innlend hlutabréf
Skráð hlutabréf 85.682 17.136 89.701 0,20 1,5
Óskráð hlutabréf 27.393 4.133 25.811 0,15 3,8
Lán til óskráðra félaga 40.653 912 3.984 0,02 3,1
Skuldabréf
Ríkisskuldabréf (m. LULUCF) 90.422 227.112 - 2,51 1,0
Ríkisskuldabréf (án LULUCF) 90.422 98.178 - 1,09 1,0
Skuldabréf óskráðra félaga 9.594 134 55 0,01 2,6
Skuldabréf skráðra félaga 10.266 197 964 0,02 1,7
Skuldabréf sveitarfélaga 19.607 450 177 0,023 2,6
Sértryggð skuldabréf 5.701 11 - 0,003 4,0
Samtals (án LULUCF) 356.535 121.296 120.691 0,34 2,6
Erlend hlutabréf 157.784 39.839 328.640 0,25 2,0