Til baka í yfirlit

Rekstur sjóðsins

Heildar skrifstofu- og stjórnunarkostnaður Birtu lífeyrissjóðs nam 1.130 milljónum króna á árinu 2025 en árið 2024 nam hann 1.013 milljónum króna.

Markvisst kostnaðareftirlit

Markvisst er dregið úr kostnaði þar sem hægt er til að hagræða í rekstri og áhersla lögð á kostnaðarárvekni alls starfsfólks.

Rekstrarkostnaður sem hlutfall af meðalstöðu hreinnar eignar til greiðslu lífeyris stóð í stað á milli ára og var 0,15% á árinu 2025 sem og á árinu 2024. Rekstrarkostnaður sem hlutfall af iðgjöldum var 4,35% á árinu 2025 en 4,01% árið áður. Frá stofnun Birtu lífeyrissjóðs í lok árs 2016 hefur hlutfall rekstrarkostnaðar af meðalstöðu hreinnar eignar til greiðslu lífeyris lækkað úr 0,22% í 0,15%. Sjóðurinn hefur gegnum árin lagt áherslu á og markvisst dregið úr kostnaði þar sem mögulegt er innan skynsamlegra marka og spilar hugarfar og samstarf starfsfólks þar stóran þátt.

Í skýringu 7 í ársreikningi má sjá sundurliðun á skrifstofu- og stjórnunarkostnaði sjóðsins.

Rekstrarkostnaður

meðalstaða eigna

Árið 2025

Árið 2024

Rekstrarkostnaður 2025

milljónir

Laun, launatengd gjöld og annar kostnaður

Aðkeypt tölvuþjónusta árið 2025 nam 6.285 milljónum króna en var 5.372 milljónir króna árið á undan. Kostnaður við rekstur upplýsingakerfa nam 196.109 milljónum króna á árinu 2025 en var 160.098 milljónir króna árið 2024. Öryggi í rekstri upplýsingatækni er stór og ört stækkandi þáttur í rekstri sjóðsins. Sívaxandi ógnir við net- og gagnaöryggi í upplýsingatækniumhverfi kalla á það að brugðist sé við og varnir efldar. Sjóðurinn leggur þunga áherslu á upplýsingatækniöryggi og að mæta nýjum ógnum með auknum vörnum. Vel ígrundaðar fjárfestingar á sviði öryggisvarna eru því mikilvægar og eru ákvarðanir þar að lútandi teknar með árvekni og skynsemi að leiðarljósi. Starfsfólk sjóðsins fær reglulega þjálfun í að greina hættur og bregðast rétt við þeim, þegar ógn steðjar að.

Gjöld til umboðsmanns skuldara hækkuðu um 21,09% milli ára, eftirlitsgjöld til Fjármálaeftirlitsins hækkuðu um 21,41% á milli ára og greiðslur til Landssamtaka lífeyrissjóða hækkuðu um 22,42% frá árinu 2024.

Fjöldi stöðugilda á árinu var 29,9 og nam heildarfjárhæð launa 660 millj. kr., þar af voru launatengd gjöld 122 millj. kr. samanborið við 610 millj. kr. á árinu 2024 en þá voru launatengd gjöld 114 millj. kr.

Annar rekstrarkostnaður nam 126 milljónum króna á árinu 2025 samanborið við 144 milljónir króna árið 2024 og lækkaði því um 12,2%. Aukinn kostnaður var við veðbandayfirlit samfara auknum lánveitingum til sjóðfélaga auk þess hefur sjóðurinn aukið við áskriftir að mikilvægum gagnaveitum á sviði áhættu- og eignastýringar. Póstkostnaður lækkaði talsvert samhliða upptöku frekari rafrænna lausna í starfsemi sjóðsins. Aðkeypt vinna lækkar frá fyrra ári.

Framleiðniauki

Kostnaðarárvekni verður áfram mikilvæg í rekstri sjóðsins og stöðugt er leitað leiða til að hagræða og draga úr kostnaði. Sjóðurinn stækkar með auknu álagi sem leitast er við að mæta með hámörkun framleiðni á hvert stöðugildi innan sjóðsins. Framleiðniaukinn sem byggður er á þróun framleiðni innan starfseminnar er drifinn áfram með einföldun vinnuferla, nýjum tæknilausnum og sjálfvirkni sem svo skilar sér í hagkvæmari rekstri.