Skyldusparnaður leggur grunn að lífinu eftir starfslok og tryggir ævilangan lífeyri og áfallalífeyri.
Launamenn, atvinnurekendur og þeir sem stunda sjálfstæða starfsemi skulu greiða iðgjöld í lífeyrissjóð frá 16 ára til 70 ára aldurs. Aðild að Birtu lífeyrissjóði byggist á ákvæðum kjarasamninga stéttarfélaga, aðild fyrirtækja eða á almennum forsendum. Í sjóðnum eru launamenn sem starfa hjá aðildarfyrirtækjum og/eða byggja starfskjör sín á kjarasamningum stéttarfélaga. Þeim er líka heimil aðild sem hvorki eru bundnir kjarasamningum tengdra stéttarfélaga né njóta ráðningarbundinna starfskjara sem byggð eru á kjarasamningum en óska eigi að síður eftir aðild að sjóðnum.
Í árslok 2025 áttu 104.590 einstaklingar réttindi í samtryggingardeild Birtu lífeyrissjóðs. Á árinu 2025 greiddu 18.701 iðgjald til samtryggingardeildar en 18.892 árið 2024. Virkir sjóðfélagar voru 16.706 á árinu 2025, það er að segja þeir sem greiddu að jafnaði iðgjöld til sjóðsins með reglubundnum hætti í mánuði hverjum. Alls greiddu 6.284 launagreiðendur iðgjöld á árinu 2025 og námu iðgjaldagreiðslur til samtryggingardeildar 24.053 milljónum króna að meðtöldum réttindaflutningi og endurgreiðslum. Framlag ríkisins til jöfnunar á örorkubyrði nam 261 þúsund krónum á árinu 2025 en var 232 milljónir króna á árinu 2024.
Á árinu 2025 námu iðgjaldagreiðslur til séreignardeildar, fyrir réttindaflutninga og endurgreiðslur, 1.131 milljónum króna en 1.094 milljónum króna árið áður. Það er 3,44% hækkun frá fyrra ári. Iðgjaldagreiðslur til tilgreindrar séreignardeildar, fyrir réttindaflutninga og endurgreiðslur, námu 628 milljónum króna á árinu 2025.
| Sérhæfð byggingarstarfsemi | 15,86% |
| Bygging húsnæðis, þróun bygginga | 11,26% |
| Sala, viðgerðir og viðhald á vélum | 6,07% |
| Framleiðsla á málmvörum | 5,62% |
| Heildverslun | 4,91% |
| Opinber stjórnsýsla | 4,87% |
| Rafmagns-, gas- og hitaveitur | 4,39% |
| Veitingasala og þjónusta | 3,61% |
| Smávöruverslun | 3,32% |
| Matvælaframleiðsla | 2,62% |
| Framleiðsla málma | 2,50% |
| Framleiðsla á vélum | 2,30% |
| Þjónustustarfsemi á sviði upplýsingatækni | 2,24% |
| Starfsemi arkitekta og verkfræði | 1,88% |
| Annað | 28,55% |
| Ríkissjóður Íslands | |
| Marel Iceland | |
| Rarik ohf. | |
| Rio Tinto á Íslandi | |
| Atvinnuleysistryggingarsjóður | |
| Landsvirkjun | |
| GR Verk ehf. | |
| Samskip hf. | |
| Brimborg ehf. | |
| Eykt ehf. | |
| Ístak hf. | |
| Veitur ohf. | |
| Kaupfélag Skagfirðinga | |
| Fæðingarorlofssjóður | |
| Securitas hf. | |
| Norðurál Grundartangi ehf. | |
| Íslensk verkmiðlun ehf. | |
| BL ehf. | |
| Byggingafélag Gylfa og Gunnars hf. | |
| Serra ehf. |