Að tryggja sjóðfélögum lífeyrisréttindi samkvæmt kjarasamningum og samþykktum er langhlaup og þar skipta þolinmæði og þrautsegja miklu máli. Þegar á reynir þarf að stíga ölduna, anda með nefinu og horfa til langs tíma. Rekstrarárið 2025 byrjaði eins og flest önnur ár þar til alþjóða stjórnmálin tóku athyglina. Tollastríð og raunveruleg stríðsátök í Evrópu og nú í Mið- Austurlöndum hafa aukið óvissu og eignir sveiflast í verði á milli mánaða. Af þeim völdum mældist til að mynda einn versti mánuður í eignastýringu hjá Birtu á síðasta starfsári. Í kjölfarið kom stjórn sérstaklega saman til að ræða málið en ákvað að halda stefnufestu, anda með nefinu og fylgjast vel með. Árinu lauk svo eins og mörgum öðrum rekstrarárum, skilaði 2,1% raunávöxtun og síðastliðin 10 ár hefur sjóðurinn skilað 3,4% raunávöxtun sem er rétt undir langtíma raunvaxtaviðmiði.
Stjórn Birtu fær ítarlegar skýrslur um rekstur og efnahag, rýnir reglulega alla helstu lykil árangursmælikvarða með gagnvirku samtali við stjórnendur og þá sem hafa eftirlit með starfseminni. Það er skemmst frá því að segja að við stjórnarborðið ríkir góður starfsandi, skoðanaskipti byggja á framlögðum gögnum og fagmennska einkennir allt starf sjóðsins. Það kemur jafnvel nýjum stjórnarmönnum á óvart hversu faglegt starfið er en kemur mér ekki lengur á óvart. Hjá Birtu vinnur starfsfólk með langa reynslu og djúpa þekkingu á starfsemi sjóðsins sem innri og ytri úttektarskýrslur staðfesta endurtekið á milli ára. Starfsandinn er góður og það skilar sér í markvissu og góðu stjórnarstarfi sem staðfest er í árangursmati stjórnar ár eftir ár.
Áföll gera ekki boð á undan sér en þegar þau birtast skiptir þessi starfsandi miklu máli. Stjórn rökræðir málefni með og án stjórnenda, fær ítarlegar upplýsingar sem miðlað er til stjórnar af heilindum og samtalið byggir á staðreyndum. Það er einkum við erfiðar ytri aðstæður eða óvænta atburði sem slíkur starfsandi skiptir máli. Að stjórn og starfsfólk geti brugðist við að undangenginni umræðu og komist að niðurstöðu. Okkur mannfólkinu hættir til að einblína á það sem stendur okkur nær í tíma og missa sjónar á langtíma markmiði. Við lærðum það á síðasta ári að mikilvægt er að vera meðvituð um líðandi stund en horfa á sama tíma á hlutverk okkar til lengri tíma. Að taka við iðgjaldi, mynda dreift eignasafn og standa með þeirri stefnu til að geta greitt lífeyri.
Allt er þetta gert á einkar hagkvæman hátt eins og rekstrarkostnaður Birtu ber merki um. Kostnaðarárvekni og aðhald er einkennandi fyrir starfsemina og samanburður við aðra lífeyrissjóði sýnir að vel er haldið um kostnað. Aðstæður starfsfólks eru til fyrirmyndar án íburðar og það er gott að sækja sjóðinn heim. Öll þjónusta er í takt við þá stafrænu þjónustu sem sjóðfélagar gera kröfu um og stöðug er leitað leiða til að hagræða og auka framleiðni á milli ára. Starfsfólk hefur náð þeim eftirtektarverða árangri að auka þjónustu og gæði hennar án þess að fjölga stöðugildum. Stöðugildi við sjóðinni hafa verið óbreytt í tíu ár þrátt fyrir mikinn vöxt og auknar kröfur. Það hefur leitt til mikils hagræðis og fyrir þá elju vil ég koma sérstökum þökkum á framfæri og bendi á að margir gætu tekið sér það viðhorf til fyrirmyndar.
Þrátt fyrir hagkvæman rekstur, rekstrarhagræði og að ávöxtun síðustu tíu ár hafi verið í samræmi við vaxtaforsendur hefur tryggingarstaða sjóðsins versnað. Þegar sjóðurinn var myndaður í lok árs 2016 var 4% halli á tryggingarfræðilegri stöðu en var um síðustu áramót neikvæður um 6%. Ástæðan er fyrst og fremst breytingar sem gerðar voru á forsendum um lífslíkur sem leiddu til aukningar á skuldbindingum. Ólíkt mörgum öðrum sjóðum gerði Birta ekki breytingar á áföllnum réttindum, sem sætir nú skoðun vegna tryggingarstöðu sjóðsins.
Við getum verið stolt af rekstri Birtu lífeyrissjóðs og senn líður að tíu ára afmæli sjóðsins sem varð til þann 1. desember 2016. Sjóðurinn varð til með sameiningu tveggja öflugra lífeyrissjóða með langa rekstrarsögu og ef horft er langt aftur er saga Birtu saga sameininga sextán sjóða á samningssviði ASÍ og SA sem nær aftur til 1939. Sameininga sem hafa getið af sér einn stærsta lífeyrissjóð landsins sem hefur vaxið og dafnað undir merki Birtu.
Tíðar fréttir af sameiningu lífeyrissjóða fóru ekki fram hjá stjórn Birtu á síðasta ári og stjórnin varði stefnumótunarfundi síðasta starfsárs til þess að skerpa stefnuna og undirbúa sjóðinn undir þá umræðu. Í byrjun þessa árs tilkynnti sjóðurinn um að hafin væri forathugun á mögulegri sameiningu Birtu og Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Forathugun sem felur í sér ítarlega greiningu á opinberum gögnum um báða sjóði, sem stendur nú yfir. Það er ábyrgðar hluti að leiða saman stærstu sameiningu á lífeyrismarkaði til þessa og stjórn hyggst vanda sig mjög vel við þá greiningu áður en ákveðið verður hvort farið verður í formlega viðræður.
Forathugunin leiðir í ljós að réttindaávinnsla hjá Birtu er góð og stenst samanburð við aðra sjóði sem helgast af karllægri lýðfræði sjóðsins hvar karlar eru um 88% af sjóðfélögum. Sjóðurinn er í þeim skilningi góður kostur til sameiningar og þegar gögnin liggja fyrir mun stjórn eiga samtal við bakland sjóðsins og taka afstöðu til þess hvert framhaldið verður.
Ég þakka stjórnarmönnum og starfsfólki Birtu lífeyrissjóðs fyrir gott og farsælt samstarf og þakka sjóðfélögum fyrir föruneytið á árinu 2025.