Til baka í yfirlit

Lífeyrir

Sjóðfélagar ávinna sér rétt til ævilangs lífeyris við starfslok. Skyldusparnaður veitir jafnframt rétt til örorkulífeyris vegna skertrar starfsgetu, rétt maka til makalífeyris við fráfall sjóðfélaga og rétt barna til barnalífeyris.

Meginhlutverk Birtu lífeyrissjóðs er að greiða lífeyri

Meginhlutverk Birtu lífeyrissjóðs er að tryggja sjóðfélögum, eftirlifandi mökum þeirra og börnum, lífeyri samkvæmt ákvæðum samþykkta sjóðsins. Með aðild að Birtu lífeyrissjóði ávinna sjóðfélagar sér rétt til ævilangs eftirlaunalífeyris. Sjóðfélagar, sem verða fyrir orkutapi sem metið er 50% eða meira, njóta réttar til örorkulífeyris og eftir atvikum barnalífeyris í samræmi við ákvæði samþykkta. Við fráfall sjóðfélaga stofnast réttur til makalífeyris og barnalífeyris í samræmi við samþykktir sjóðsins.

Fjölgun lífeyrisþega og lífeyrisgreiðslur
  • Lífeyrisþegar voru 19.599 í árslok 2025 og þeim fjölgaði á árinu um 4,4%.
  • Á árinu 2025 hófu 1.804 sjóðfélagar töku eftirlaunalífeyris en 2.076 árið 2024.
  • Lífeyrisgreiðslur samtryggingardeildar námu 24.703 milljónum króna árið 2025, sem var 11,7% aukning frá fyrra ári.
  • Lífeyrisgreiðslur fylgja breytingum á vísitölu neysluverðs til verðtryggingar. Vísitalan hækkaði um 3,7% á árinu 2025.
  • Lífeyrisbyrði sjóðsins, þ.e. lífeyrisgreiðslur í hlutfalli af iðgjaldagreiðslum, var 103,4% á árinu 2025 en 95,3% árið áður.
  • Meðalaldur við upphaf töku eftirlaunalífeyris sl. 5 ára er 65,3 ár.

Aldursskipting nýrra eftirlaunaþega

Myndin sýnir á hvaða aldri eftirlaunaþegar eru þegar þeir hefja töku lífeyris

Fjöldi

Fjöldi lífeyrisþega í samtryggingardeild

2025 2024 Breyting
Eftirlaunalífeyrir 15.061 14.210 5,99%
Örorkulífeyrir 2.712 2.705 0,26%
Makalífeyrir 2.056 2.072 -0,77%
Barnalífeyrir 335 339 -1,18%

Lífeyrisgreiðslur samtryggingardeildar í milljónum kr.

2025 2024 Breyting
Eftirlaun 20.586 18.412 11,81%
Örorkulífeyrir 2.745 2.399 14,42%
Makalífeyrir 1.269 1.200 5,76%
Barnalífeyrir 103 97 6,13%
Samtals: 24.703 22.108 38,12%

Fjölskyldubætur

Birta er eini sjóðurinn sem greiðir fjölskyldubætur

Greiðsla fjölskyldubóta árið 2025
  • Fjölskyldubætur eru greiddar einu sinni við fráfall sjóðfélaga yngri en 67 ára og hafa þann tilgang að létta undir með nánustu aðstandendum þegar ungir sjóðfélagar falla skyndilega frá. Fjölskyldubætur skiptast í maka- og barnagreiðslur.
  • Á árinu 2025 voru greiddar út 64,1 milljón króna í fjölskyldubætur.
  • Greitt var samtals 61,3 milljónir króna í makalífeyri.
  • Barnagreiðslur námu samtals 2,8 milljónir króna.

Útborgun úr séreignardeild

Greiddar voru 1.100 milljónir króna úr séreignardeild

Þar af var rúmlega 293,2 milljónum króna ráðstafað inn á húsnæðislán rétthafa í samræmi við lög nr. 40/2014 um séreignarsparnað og ráðstöfun hans til greiðslu húsnæðislána og húsnæðissparnaðar. Í árslok 2025 áttu 31.513 einstaklingar réttindi í séreignardeild og virkir sjóðfélagar voru 2.482.

Greiðslur séreignardeildar í milljónum kr.
2025 2024 Breyting %
Iðgjöld 1.131 1.089 3,86%
Útborgun 807 874 -7,68%%
Ráðstöfun inn á húsnæðislán 293 291 0,81%

Útborgun úr tilgreindri séreignardeild

Í árslok 2025 átti 2.441 einstaklingur réttindi í tilgreindri séreignardeild.

Virkir sjóðfélagar í tilgreindri séreignardeild voru 1.562. Á árinu 2025 námu iðgjaldagreiðslur til tilgreindrar séreignardeildar, fyrir réttindaflutninga og endurgreiðslur 628 millj. kr.

Greiðslur tilgreindrar séreignardeildar í milljónum kr.
2025 2024 Breyting %
Iðgjöld 628 615 2,11%
Útborgun 230 205 12,68%