Hrein eign til greiðslu lífeyris var samtals 736.653 milljónir króna í árslok 2025. Hrein nafnávöxtun eignasafnsins var 5,89% á árinu sem samsvarar 2,11% raunávöxtun.
Hrein eign samtryggingardeildar Birtu var 707.878 milljónir króna í árslok 2025. Hrein nafnávöxtun samtryggingardeildarinnar var 5,90% á árinu sem samsvarar 2,12% raunávöxtun.
Myndin sýnir þróun á eignum samtryggingardeildar á árinu 2025. Í upphafi árs stóðu eignir í 669.235 milljónum króna. Þá námu iðgjaldagreiðslur á árinu 24.053 milljónum króna. Á móti var greiddur lífeyrir að fjárhæð 24.871 milljónir króna. Nettóútflæði frá deildinni nam því 818 milljónum króna á árinu. Þá voru hreinar fjárfestingartekjur yfir þetta tímabil 40.507 milljónir króna og rekstrarkostnaður 1.047 milljónir króna. Í árslok 2025 stóð hrein eign deildarinnar í 707.878 milljónum króna og hækkaði því á milli ára um 38.643 milljónir króna eða um 5,77%.
Taflan sýnir nafn- og raunávöxtun helstu eignaflokka samtryggingardeildar á árinu 2025
| Raunávöxtun |
| 6,2% |
| 3,3% |
| 2,8% |
| 3,8% |
| 3,2% |
| -2,6% |
| 5,2% |
| -4,2% |
Taflan sýnir hlutfallslega skiptingu helstu eignaflokka samtryggingardeildar Birtu og fjárhæðir þeirra, annars vegar í árslok 2025 og hins vegar í árslok 2024
| Í árslok 2025 | Í árslok 2024 | |||
Hrein eign séreignardeildar var 24.256 milljónir króna í árslok 2025 og hækkaði um 1.303 milljónir króna frá fyrra ári. Þá námu lífeyrisgreiðslur deildarinnar 1.100 milljónum króna á árinu 2025.
Sjóðurinn býður upp á þrjár mismunandi sparnaðarleiðir í séreign og tilgreindri séreign. Þær eru innlánsleið, skuldabréfaleið og blönduð leið. Í blönduðu leiðinni eru bæði skuldabréf og hlutabréf á meðan eignir skuldabréfaleiðarinnar eru nánast eingöngu skuldabréf auk lítils hluta innlána. Þá eru eignir innlánsleiðarinnar, eins og nafnið gefur til kynna, einungis innlán.
Frá ársbyrjun 2022 hafa sjóðfélagar Birtu í tilgreindri séreign geta valið á milli þessara sömu þriggja sparnaðarleiða og séreignadeildin hefur boðið upp á. Fyrir þann tíma var einungis ein sparnaðarleið í boði fyrir tilgreindu séreignina.
Nafn- og raunávöxtun leiðanna á árinu 2025 ásamt 5 og 10 ára meðaltali hreinnar raunávöxtunar má sjá hér fyrir neðan.
Tilgreind séreign er sérstök tegund séreignarsparnaðar.
Sjóðfélagar geta valið að ráðstafa allt að 3,5% skylduiðgjaldsins í séreignarsjóð. Innistæða í tilgreindri séreign er eign þess sem leggur hana fyrir og um hana gilda sömu reglur og um hefðbundna séreign hvað íslensk erfðalög varðar, þ.e. tilgreind séreign erfist við fráfall.
Hrein eign tilgreindrar séreignar var 4.520 milljónir króna í árslok 2025 og jókst um 600 milljónir króna frá fyrra ári. Þá námu lífeyrisgreiðslur deildarinnar 232 milljónum króna á árinu 2025.
Súluritið sýnir fimm ára meðaltals ávöxtun tilgreindu séreignarinnar. Á árinu 2021 var eingöngu ein sparnaðarleið í boði og er ávöxtunin því sú sama í öllum þremur sparnaðarleiðunum á þessu eina ári. Ávöxtun sl. fjögurra ára tekur hins vegar mið af því hvaða sparnaðarleið sjóðfélagi valdi í ársbyrjun 2022.