Til baka í yfirlit

Þjónusta

Birta leggur áherslu á að veita sjóðfélögum frábæra þjónustu með fagmennsku, ábyrgð og heiðarleika að leiðarljósi.

Góð og persónuleg þjónusta

Við viljum veita framúrskarandi þjónustu með góðri samvinnu, jákvæðu viðmóti og virðingu

Við höfum sett okkur þjónustustefnu sem við vinnum eftir

Við leggjum áherslu á að veita sjóðfélögum framúrskarandi þjónustu. Starfsfólk okkar býr yfir sérfræðiþekkingu hvert á sínu sviði og leggur mikið upp úr því að veita sjóðfélögum faglega, gagnlega og góða leiðsögn.

Þjónustustig sjóðsins er hátt og þjónustan á skrifstofu sjóðsins fær hæstu einkunn sjóðfélaga. Reglubundnar þjónustukannanir sem innleiddar voru á árinu 2024, voru í fullri virkni á árinu 2025 og juku innsýn okkar í upplifun sjóðfélaga og annarra viðskiptavina. Að baki hinum góða árangri í þjónustu liggur markviss vinna og fræðsla til starfsmanna um að veita framúrskarandi þjónustu, sama hvort hún er veitt á skrifstofu sjóðsins eða með rafrænum lausnum. Við leggjum áherslu á að bjóða upp á notendavænar rafrænar lausnir sem sjóðfélagar geta nýtt sér þegar þeir sækja upplýsingar um stöðu sína hjá sjóðnum, sækja um lífeyri, séreignarsparnað eða lán.

Á árinu 2024 lauk uppsetningu og innleiðingu á nýju viðskiptamannakerfi innan sjóðsins. Ferli í þjónustu og markaðssetningu var bætt með innleiðingu á nýja kerfinu, sem nú er komin reynsla á. Viðskiptasamband sjóðsins við sjóðfélaga hefur dýpkað með tilkomu kerfisins, báðum aðilum í hag. Í kerfinu höldum við utan um öll samskipti við fyrrverandi, núverandi og verðandi sjóðfélaga okkar og viðskiptavini. Með skráningu samskipta við sjóðfélaga og alla þá er hafa samband við sjóðinn í viðskiptamannakerfi verður til dýrmætur grunnur upplýsinga sem opnar möguleika á enn betri yfirsýn starfsfólks og í framhaldinu innihaldsríkari þjónustu.

2.564 sjóðfélagar heimsóttu skrifstofu Birtu á árinu, en fjölmargir sjóðfélagar nýttu sér rafræna þjónustu, höfðu samband símleiðis eða með tölvupóstsamskiptum.

Til að þjónusta sjóðfélaga sem best er stöðugt unnið að endurbótum á vefsíðunni, birta.is.

Þjónustustefna Birtu lífeyrissjóðs

Starfsfólk Birtu lífeyrissjóðs veitir persónulega þjónustu. Við fylgjum mörgum á lífsins leið og berum því mikla ábyrgð. Við aðstoðum á faglegan hátt og gætum þess að mæta sjóðfélögum og viðskiptavinum af nærgætni og fagmennsku með hag þeirra að leiðarljósi. Sjóðurinn hugsar í framtíð og stundar nútímaleg, tæknileg og vönduð vinnubrögð. Með þessu er leitast við að veita samræmda þjónustuupplifun fyrir alla okkar sjóðfélaga og viðskiptavini.

Þjónustan

Birta lífeyrissjóður tekur á móti fjölda umsókna á hverju ári ásamt því að veita ráðgjöf til sjóðfélaga

2.564
Heimsóknir á skrifstofu
7.798
rafrænar umsóknir
14.544
Símtöl vegna ráðgjafar

Tryggingavernd og fjármálaþjónusta með hagsmuni sjóðfélaga að leiðarljósi

Starfsemi Birtu þjónar fyrst og fremst íslenskum neytendamarkaði

Birta lífeyrissjóður veitir tryggingavernd og fjármálaþjónustu á íslenskum neytendamarkaði. Við gætum hagsmuna sjóðfélaga sem neytenda og verndum sjóðfélaga eins og neytendur samkvæmt lögum um neytendakaup. Við sundurgreinum markaði sem Birta þjónustar með eftirfarandi hætti:

Íslenskur tryggingamarkaður

Samtryggingardeild Birtu veitir lífeyristryggingar (lágmarkstryggingavernd) samkvæmt samþykktum og lögum þar um og telst sá þáttur veigamestur í starfsemi Birtu. Rúmlega 100 þúsund einstaklingar njóta tryggingaverndar samtryggingardeildar Birtu þar sem tryggingaverndin ræðst af uppsöfnuðu iðgjaldi yfir starfsævina. Tryggingaverndin er hluti af kjarasamningsbundinni aðild launamanna að sjóðnum samkvæmt samþykktum og lögum um lífeyrissjóði. Þar að auki geta aðilar, sem hvorki eru bundnir kjarasamningum aðildarfélaga Birtu né njóta ráðningarbundinna starfskjara sem byggð eru á kjarasamningum, greitt til samtryggingardeildar Birtu.

Séreignardeild Birtu veitir viðbótartryggingavernd, oft nefnt séreignarsparnaður, með samningum um tryggingavernd, sem er umfram þá lágmarkstryggingavernd sem samtryggingardeild Birtu veitir. Alls eiga 31.513 rétthafar hlutdeild í séreignardeild Birtu og 2.441 rétthafi í tilgreindri séreignardeild.

Fasteignalánamarkaður

Heildareignir Birtu í fasteignalánum til neytenda námu um 91,1 milljarði í árslok 2025. Fjöldi lántaka jókst á árinu og voru þeir um 3.900 í árslok en voru um 3.400 í árslok árið áður.

Húsnæðislán til neytenda námu samtals rúmum 2.900 milljörðum í árslok 2025. Markaðhlutdeild lífeyrissjóðanna jókst nokkuð á árinu, fór úr 24,5% í 27,3%. Markaðshlutdeild bankanna lækkaði úr 70,6% í 68,2% og hlutdeild annarra aðila fór í 4,45%. Markaðshlutdeild Birtu hækkaði úr 2,45% í 3,14% í árslok 2025.