Til baka í yfirlit

Sjóðfélaga­lán

Sjóðfélagar sem greitt hafa til samtryggingardeildar hjá Birtu lífeyrissjóði geta sótt um húsnæðislán hjá sjóðnum, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Aukning í lánveitingum

Aukning var í afgreiddum sjóðfélagalánum milli ára en veitt voru 858 sjóðfélagalán á árinu 2025 samanborið við 512 lán árið áður.

Afgreidd sjóðfélagalán

á árinu 2025

Afgreidd sjóðfélagalán

Á árinu 2024

Afgreidd sjóðfélagalán

Fjárhæðir í milljónum kr.

2025 2024 2023 2022
Fjárhæð 32.319 15.843 8.364 6.655
Fjöldi lána 858 512 315 281
Meðalfjárhæð 37,7 30,9 26,6 23,7

Veitt sjóðfélagalán eftir lánategund

Fjárhæðir í milljónum kr.

2025 meðalfjárhæð 2024 meðalfjárhæð 2023 meðalfjárhæð
Veitt verðtryggð lán - fastir vextir 2.613 32,2 418 32,2 37 37,0
Veitt verðtryggð lán - breytilegir vextir 25.139 34,5 13.871 34,5 5.892 28,7
Veitt óverðtryggð lán - breytilegir vextir 4.567 16,0 1.554 16,0 2.435 22,3
Samtals veitt lán 32.319 15.843 8.364
Hlutfall af heildareignum sjóðsins óbreytt milli ára

Í árslok 2025 voru lán til sjóðfélaga um 91,1 milljarður króna en voru 67,2 milljarðar árið áður. Þetta eru um 12,4% af heildareignum sjóðsins sem er nokkur aukning milli ára en hlutfallið var 9,7% árið áður.

Staða sjóðfélagalána í árslok

fjárhæðir í milljónum króna

2025 Fjöldi Meðalfjárhæð 2024 Fjöldi Meðalfjárhæð
Verðtryggð lán - fastir vextir 6.051 268 22,9 3.788 224 17,0
Verðtryggð lán - breytilegir vextir 66.430 2.506 26,6 45.300 2.104 21,5
Óverðtryggð lán - breytilegir vextir 18.643 1.094 17,1 18.109 1.103 16,4
Samtals 91.124 3.868 23,6 67.197 3.431 19,6

Vanskil og uppgreiðslur sjóðfélagalána

Vanskilahlutfall sjóðfélagalána lækkar á milli ára og var um 0,0138% samanborið við 0,021% árið áður.

Færri sjóðfélagalán voru greidd upp á árinu en undanfarin ár en greidd voru upp 386 lán að fjárhæð 6,1milljarða króna samanborið við 455 lán að fjárhæð 6,93milljarða króna árið áður.

Sjóðfélagalán

Með lánareiknivél á heimasíðu sjóðsins er hægt að kynna sér hvaða tegund lána hentar best

Hámarks veðsetningarhlutfall er 65% af fasteignamati eða kaupverði í fasteignaviðskiptum nema þegar um fyrstu kaup sjóðfélaga er að ræða en þá er veðhlutfallið 75%.

Hægt er að velja milli þriggja lánategunda:

  • Verðtryggð lán með föstum vöxtum
  • Verðtryggð lán með breytilegum vöxtum
  • Óverðtryggð lán með breytilegum vöxtum

Með lánareiknivél á heimasíðu sjóðsins er hægt að kynna sér hvaða tegund lána og samsetning hentar best. Allar lánategundir eru í boði með jöfnum greiðslum eða jöfnum afborgunum og lánstíminn getur verið á bilinu 5 – 40 ár.

Lánsréttur hjá Birtu lífeyrissjóði

Lánsrétt eiga, að uppfylltum öðrum skilyrðum lánareglna:

  • Sjóðfélagar sem greitt hafa iðgjöld á grundvelli heildarlauna vegna starfa hjá a.m.k. einum launagreiðanda, síðastliðna 6 mánuði samfellt í samtryggingardeild.
  • Lífeyrisþegar Birtu, hafi þeir átt lánsrétt við töku lífeyris. Það sama á við um makalífeyrisþega.

Lánsupphæð, lánstími og lánskjör

Á árinu 2025

Hámarkslánsfjárhæð sjóðfélagalána var hækkuð úr 65 milljónum króna í 85 milljónir króna í apríl 2025, hámarksveðhlutfall er 65% af fasteignamati eða kaupverði ef um fasteignaviðskipti er að ræða en allt að 75% ef um fyrstu kaup er að ræða.

Breytilegir verðtryggðir vextir sjóðfélagalána hækkuðu á árinu úr 3,16% í ársbyrjun 2025 í 3,60% í árslok. Óverðtryggðu vextirnir lækkuðu hins vegar úr 9,60% í 8,35% samhliða lækkun meginvaxta Seðlabankans á árinu. Breytilegu verðtryggðu vextirnir fylgja þróun vaxta á verðtryggðum ríkisskuldabréfum og óverðtryggðu vextirnir fylgja meginvöxtum Seðlabanka Íslands.

Lánsupphæð, lánstími og lánskjör

Lánstími lána er 5 – 40 ár, lágmarksfjárhæð er kr. 1 millj. kr. og er að hámarki kr. 85 millj. kr. og hægt er að velja milli jafnra afborgana eða jafnra greiðsla af lánunum.

Afgreiðsla lána

Sjóðfélagar sækja um lán með rafrænum skilríkjum á heimasíðu Birtu, fá rafrænt greiðslumat og afla sjálfir nær allra gagna sem nauðsynleg eru

Mikil aukning var í lánsumsóknum á árinu 2025 en afgreidd voru 858 lán á árinu samanborið við 512 árið á undan. Vegna þess þá lengdist afgreiðslutími lánsumsókna nokkuð á árinu en hann var lengstur rúmar 5 vikur fyrir endurfjármagnanir, lánsumsóknir vegna fasteignakaupa ganga fyrir og eru afgreiddar innan þess frests sem umsækjendur hafa samkvæmt kauptilboði. Í lok árs hafði hægt aðeins á og biðtíminn styst samhliða.

Skattfrjáls ráðstöfun séreignarsparnaðar

Í árslok 2025 rann út almenn heimild til að ráðstafa séreignarsparnaði inn á lán eða vegna íbúðakaupa. Áfram er í gildi heimild fyrir fyrstu kaupendur að nýta séreignarsparnað skattfrjálst vegna kaupa eða byggingar á fyrstu íbúð. Heimildin skiptist annar vegar í útborgun uppsafnaðs séreignarsparnaðar og hins vegar mánaðarlega ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á íbúðalán. Árleg hámarksnýting er 500.000 kr. fyrir hvern einstakling og nýtingin getur staðið yfir í 10 ára samfellt tímabil.