Til baka í yfirlit

Ábyrgar fjárfestingar

Birta lífeyrissjóður leggur áherslu á sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð í fjárfestingum sínum.

Stefna sjóðsins um ábyrgar fjárfestingar

Stefna um ábyrgar fjárfestingar er hluti af fjárfestingarstefnu Birtu. Lögð er áhersla á samþætta aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga við hefðbundnar fjárhagslegar greiningar við samval verðbréfa.

Grundvallarviðmið SÞ, íslensk lög ásamt evrópskum reglugerðum leggja grunninn að aðferðafræði Birtu við samþættingu sjálfbærniviðmiða í fjárfestingarferli sjóðsins.

Í ágúst 2024 tók gildi reglugerð Seðlabanka Íslands um upplýsingagjöf tengda sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu (sk. PAI-reglugerð) sett með heimild í lögum nr. 25/2023 um upplýsingagjöf um sjálfbærni á sviði fjármálaþjónustu og flokkunarkerfi fyrir sjálfbærar fjárfestingar, sem leidd voru í lög ári áður í júní 2023.

Markmiðið er sem fyrr að samræma og auka gagnsæi upplýsingagjafar um sjálfbærni í rekstri félaga. Upplýsingar sem Birtu lífeyrissjóði ber að birta samkvæmt lögunum má finna á heimasíðu sjóðsins.

Evrópusambandið hefur um nokkurt skeið stefnt að því að einfalda sjálfbærniregluverk ESB til að auka samkeppnishæfni fyrirtækja og draga úr kostnaði. Evrópusambandið hefur í þessu skyni samþykkt breytingar á lykilregluverki á sviði sjálfbærni, þ.m.t. CSRD tilskipuninni. Í því felst m.a. að meiri áhersla verður lögð á upplýsingagjöf stærri fyrirtækja en dregið að sama skapi úr kröfum til minni og meðalstórra fyrirtækja. Það þýðir í reynd að færri fyrirtæki munu falla undir skýrsluskyldu. Reglurnar hafa enn ekki tekið gildi á Íslandi þar sem það þarf að taka þær upp í gegnum EES samninginn og íslensk lög. Óvissa er enn til staða um tímasetningar og útfærslu en vonir standa til þess að innleiðing geti átt sér stað á árunum 2026-7.

Birta lífeyrissjóður horfir einnig til Heimsmarkmiða SÞ um sjálfbæra þróun í allri sinni starfsemi. Um er að ræða umfangsmestu markmið sem ríki heims hafa komið sér saman um en markmið þeirra er að tryggja velmegun og mannréttindi um allan heim fyrir árið 2030.

UNPRI

Birta er aðili að sáttmála Sameinuðu þjóðanna (SÞ) um ábyrgar fjárfestingar "UN PRI Principle for Responsible Investment".

UN PRI eru alþjóðlegt samstarf sem hvetur fjárfesta til að taka tillit til umhverfis-, félagslegra þátta og stjórnarhátta (UFS) þegar þeir taka fjárfestingaákvarðanir. Þeir sem ganga að reglunum skuldbinda sig til að fylgja sex meginreglum sem snúa meðal annars að því að:

  • Sameina UFS-þætti við fjárfestingarferlið
  • Vera virkir eigendur verðbréfa
  • Krefjast betri upplýsingagjafar
  • Styðja við að fleiri innleiði reglurnar
  • Vinna með öðrum aðilum að bættri framkvæmd
  • Skila reglulega frá sér upplýsingum um árangur

UNPRI metur hvernig þátttakendur standa sig. Markmiðið er að bera saman frammistöðu, hvetja til umbóta og auka gagnsæi gagnvart fjárfestum og almenningi.

Þátttakendur skila inn reglulegum skýrslum um starfsemi sína. UN PRI fer yfir þær, metur frammistöðu út frá ákveðnum viðmiðum og gefur einkunn í mismunandi flokkum

Meðfylgjandi mynd sýnir einkunn Birtu fyrir árið 2025.

Birta heldur áfram að bæta einkunn sína hjá UN PRI. Bætt hefur verið við eignaflokka í skýrslugjöf má þar meðal annars nefna skuldabréf fyrirtækja og innviðafjárfestingar. Sjóðurinn er ánægður með árangurinn sem náðst hefur og mun kappkosta að halda áfram að bæta sig í þessum efnum enda er mat á UFS þáttum mikilvægt bæði við eigna- og áhættustýringu hjá sjóðnum

Skýringuna á bættri einkunn Birtu má meðal annars rekja til að meiri áhersla var lögð í skýrslugjöf til UN PRI á milli ára sem sýnir og útskýrir betur það starf sem unnið er innan sjóðsins þegar kemur að ábyrgum fjárfestingum. Þá eru þættir eins og samtal við útgefendur, útreikningur á fjármagnaðri losun og loftlagsáhættugreining sem unnið hefur verið að undanfarið líka þættir sem metnir voru til hækkunar.

Hér má sjá niðurstöður úttektar UN PRI.

Alþjóðlegt samstarf - CIC

Birta er þátttakandi í samstarfi norrænna og breskra lífeyrissjóða um fjárfestingar í hreinni orkuframleiðslu

Viljayfirlýsing íslensku lífeyrissjóðanna gagnvart alþjóðlegu samtökunum Climate Investment Coalition CIC kveður á um fjárfestingu fyrir samtals 4,5 milljarða Bandaríkjadala sem samsvarar um 580 milljörðum íslenskra króna í verkefnum sem tengjast hreinni orku og öðrum umhverfisvænum lausnum fram til ársins 2030. Frá því að samstarfið hófst hefur Birta fjárfest umtalsvert í fyrirtækjum bæði skráðum og óskráðum sem flokkast undir skilgreininguna og hleypur það á þriðja tug milljarða. Auk þess hefur sjóðurinn skuldbundið sig til frekari fjárfestinga sem flokkast undir samkomulagið.

Mikilvæg verkefni framundan hjá sjóðnum varðandi sjálfbæra þróun

Sjálfbær þróun er langtímaverkefni sem krefst stöðugrar endurskoðunar, umbóta og markvissrar eftirfylgni. Á árinu 2025 lagði Birta áherslu að auka þekkingu starfsmanna og stjórnar sjóðsins á ábyrgum fjárfestingum. Stjórn sótti námskeið á vegum UN PRI sem var sniðið að þörfum stjórnar en starfsmenn eignastýringar sóttu námskeið sem snýr meira að fjárfestingum.

Sjóðurinn nýtir sér upplýsingakerfi sem nýtast við sjálfbærnigreiningu og utanumhald um viðeigandi gögn. Má þar nefna Reitun fyrir íslenska markaðinn og Morningstar og Bloomberg fyrir erlenda markaði.

Sjóðurinn mun halda áfram virku samtali við útgefendur og aðra hagsmunaaðila með það að markmiði að stuðla að auknu gagnsæi og dýpri umræðu um sjálfbærnimál. Þá verður áfram unnið að því að ná betri yfirsýn yfir loftslagsáhættu eignasafnsins og þróa aðgerðir byggðar á niðurstöðum þeirra greininga.

Útreikningur á fjármagnaðri kolefnislosun samkvæmt PCAF-aðferðafræðinni er áfram lykilverkefni í þessu samhengi og er nánar fjallað um niðurstöður þess í sérstakri umfjöllun.

Að auki stefnir Birta að því að bæta einkunn sína í UN PRI skýrslunni, sem er alþjóðlegur viðmiðunarstaðall um árangur í ábyrgum og sjálfbærum fjárfestingum.